13.5.2009 | 08:24
Þórarinn Tyrfingsson á Útvarpi Sögu FM 99,4
Miðvikudaginn 13 maí verður Þórarinn Tyrfingsson gestur minn á Útvarpi Sögu klukkan 15.
Það má segja að hann sé goðsögn í lifandi lífi. Margir eiga honum líf sitt að launa og starf hans að upp byggingu SÁÁ og Sjúkrahússin Vog er einsdæmi í veraöldinni.
Hann fæddist í Kleppsholtinu í Reykjavík og ólst þar upp. Gekk í gagnfræðaskóla í Vogunum og spilaði handbolta í íþróttahúsinu að Hálogalandi. Hann var Héraðslæknir á Hvammstanga þegar hann fór í meðferð hjá sjúkrastöð SÁÁ í Reykjadal í Mosfellssveit 28 nóvember 1978. Hann varð síðan yfirlæknir hjá SÁÁ og formaður samtakanna. Læknir með eigin reynslu af alkóhólisma sem var tilbúinn til að hjálpa öðrum alkóhólistum til að ná bata.
Það verður fróðlegt að heyra sögu Þórarins og hver staða SÁÁ er í samfélaginu í dag.
www.Utvarpsaga.is og FM 99,4
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.